Vordagar í skólanum

Á þriðjudag og miðvikudag voru vordagar í skólanum okkar. Fyrri daginn fóru hóparnir í bekkjarferðir. 1. og 2. bekkur fór í Bustarfell þar sem krakkarnir skoðuðu bæinn og fengu fræðslu. 3. og 4. bekkur fór í sundferð þar sem allir skemmtu sér vel. 5., 6. og 7. bekkur fór í pílu og síðan áttu þau notalega stund í Vallarhúsi Einherja. 8. og 9. bekkur fór í kassaklifur og síðan að leysa allskonar þrautir í bænum. Nemendur 10. bekkjar voru í árlegu skólaferðalagi þessa dag þar sem þeir fóru m.a. í hvalaskoðun, flúðasiglingar, litabolt og zipline. Afskaplega vel heppnuð ferð.

Á miðvikudeginum fóru nemendur og starfsfólk svo í göngu og hjólaferð og heppnuðust ferðirnar mjög vel. Að loknum ferðunum fengu allir sér grillaðar pylsur á skólavellinum.