Farsæld barna

Börn og foreldrar sem á þurfa að halda eiga að hafa aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Samþætt þjónusta í þágu farsældar barns er skipulögð og samfelld og hefur það markmið að skapa heildarsýn og ramma um þau þjónustukerfi sem skipta máli fyrir farsæld barna.

Öll börn og foreldrar skulu hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf krefur. 

Hlutverk tengiliðar er fyrst og fremst að veita upplýsingar, aðstoða foreldra og barn og styðja við samþættingu á fyrsta stigi í samræmi við óskir foreldra og/eða barns.

Foreldrar og börn geta alltaf sjálf leitað til tengiliðar í nærumhverfi barnsins og óskað eftir samþættri þjónustu. Hægt er að lesa nánar um þjónustuna með því að smella hér.

Foreldrar /barn sem óska eftir aðstoð tengiliðar, fylla út umsókn og samþykkja gagnöflun.

Tengiliður Vopnafjarðarskóla er:

María Guðmundsdóttir

María er með viðtalstíma á föstudögum frá kl. 11.00-11.40 eða eftir samkomulagi.

maria@vopnaskoli.is