Þorrablót Vopnafjarðarskóla

Fimmtudaginn 9. febrúar, er þorrablót nemenda í 6.-10. bekk og starfsfólks. Þorrablótið hefst stundvíslega kl. 19:00 og aðgangseyri er 2000 krónur. 

Nemendur í 10. bekk sjá um veislustjórn og skemmtiatriði.  Nemendur  í 9. bekk sjá um skreytingar og 8. bekkingar þjóna til borðs.

Föstudaginn 10. febrúar er þorrablót fyrir 1.-5. bekk.  Þar er boðið upp á valin skemmtiatriði frá blóti eldri nemenda og sunginn fjöldasöngur.