Stóra upplestrarkeppnin

Stóra upplestrarkeppnin var haldin í gær í Vopnafjarðarskóla, 6 hugrakkir og duglegir nemendur tóku þátt. Nemendur stóðu sig vel og verkefni dómnefndar er ávallt erfitt.

Sigurvegari í Stóru upplestrarkeppninni árið 2026 í Vopnafjararskóla er Gríma Ólafsdóttir og í 2. sæti Stefán Þór Skúlason og er hann varamaður. Við óskum Grímu innilega til hamingju með árangurinn og öllum nemendum fyrir góða frammistöðu.

Stóra upplestrarkeppnin er árleg keppni fyrir nemendur í 7. bekk sem miðar að því að efla færni þeirra í upplestri og framsögn. Keppnin hefst formlega á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, og lýkur með lokahátíð á Egilsstöðum 16. mars , þar sem allir skólar í Múlaþingi taka þátt.