Meðal fastra liða var árleg berjaferð í Krossavík í upphafi skólaárs og haustferð innan sveitar. Að þessu sinni fór miðstigið einnig í menningarferð á Seyðisfjörð sem tókst afar vel. Þá tóku nemendur í 9. og 10. bekk þátt í Erasmus-verkefni og fóru til Hollands þar sem þeir fræddust um lýðræði, mannréttindi og alþjóðlegt samstarf.
Þemadagar vetrarins voru helgaðir vinsemd og velvild. Í framhaldinu var haldinn góðgerðardagur þar sem safnaðist um 308 þúsund krónur sem runnu til Hjúkrunarheimilisins Sundabúðar. Nemendur afhentu gjöfina með stolti í desember.
Árshátíð skólans var sem fyrr einn af hápunktum ársins og sýndi glöggt þá hæfileika og áræðni sem býr í nemendahópnum. Skólinn tók einnig þátt í Lego-keppni og hlaut jafningjaverðlaun fyrir góða liðsheild og samstarf.
Í mars tóku nemendur í 4.–10. bekk þátt í stöðu- og framvinduprófum í stærðfræði og íslensku. Niðurstöðurnar voru í heildina ágætar og munu nýtast skólanum við áframhaldandi þróun og umbætur í starfi.
Skólinn gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu og er samstarf heimilis og skóla lykilatriði í farsælu námi og vellíðan nemenda. Við lok skólaársins er nemendum hvatt til að nýta sumarið vel, lesa góðar bækur og auka orðaforða sinn.
Nemendur í 6. og 10. bekk fengu viðurkenningar í verklegum greinum og nemandi í 10. bekk fékk viðurkenningar fyrir góðan námsárangur.
Nemendur úr Tónlistaskóla Vopnafjarðar fluttu tónlistaratrið undir stjórn Baldvins Eyjólfssonar.
Skólastjóri talaði líka sérstaklega til 10. bekkjar sem voru að ljúka sinni grunnskólagöngu.
Það er ávallt bæði gleði og smá söknuður í loftinu þegar við kveðjum nemendur eftir tíu ára grunnskólagöngu. Á þessum árum hafa þau ekki bara lært það sem til er ætlast samkvæmt námskrá heldur líka ýmislegt annað s.s. vináttu, seiglu og að takast á við alls konar áskoranir.
Við erum stolt af þessum skemmtilega og skapandi hópi og óskum þeim alls hins besta í framhaldsskóla og í öllu því sem framtíðin ber í skauti sér.
Sigríður Elva er að láta af störfum sem skólastjóri og þakkaði sérstaklega samstarfsfólki sínu fyrir gott samstarf. Hún sagði að það hefði verið mikill heiður að starfa með þessum öfluga hópi starfsfólks og leiða gott og farsælt skólastarf.
Sérstakar þakkir færði hún Svövu Birnu fyrir einstaklega gott, traust og farsælt samstarf.
Að lokum þakkaði Sigríður nemendum, foreldrum og starfsfólki fyrir gott samstarfið á skólaárinu og síðust árum.
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 470 3250 / Stafrænt leyfisblað er á heimasíðu skólans.