Föstudaginn 22. ágúst var Vopnafjarðarskóli settur.
Skólastjóri ávarpaði nemendur og foreldra/forráðamenn þeirra og upplýsti um hagnýt atriði varðandi skólastarfið.
Í haust hefja 78 nemendurt nám við skólann og starfsmenn eru 23 í misháu starfshlutfalli.
Eftir stutta athöfn á sal skólans fóru nemendur með umsjónarkennurum í sínar heimastofur þar sem línurnar voru lagðar fyrir skólastarfið í vetur.
Teymiskennsla verður á öllum skólastigum og áhersla á mikið og gott samstarf kennara. Kennsluhópar eru 1.-2. bekkur, 3.-4. bekkur, 5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur.
Boðið verður upp á skóladagvist fyrir 1.-4. bekk frá 7.50-8.30. Eftir skóla er opið frá 13.30-15.30 alla daga nema fyrsta mánudag í mánuði en þá er skóladagvistin frá kl. 13:30-14:30.
Skólinn opnar kl. 8.15 fyrir eldri nemendur og þá sem ekki eru í frístund.
Skólastjóri lagði áherslu á að gott samstarf heimilis og skóla væri grundvöllur að farsælu námi barnanna okkar.
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 470 3250 / Stafrænt leyfisblað er á heimasíðu skólans.