Skólahreystikeppni

Í gær fór fram árleg skólahreystikeppni okkar fyrir keppnina stóru á Egilsstöðum. Þá er hraðabraut líkust því sem er í Skólahreysti stillt upp í salinn. Fyrst er tekinn tími á öllum sem vilja í eldri bekkjum og síðan fá þeir yngri að spreyta sig.  Að lokum reyndu þeir fyrir sér sem líklegir voru í  aðrar greinar keppninnar. Og liggur nú nokkuð ljóst fyrir hverjir fara fyrir okkar hönd í keppnina sem fram fer miðvikudaginn 5. apríl.