Sigur í hraðabrautinni í Skólahreysti

Skólahreystikeppnin á Egilsstöðum fór fram fimmtudaginn 6. apríl.  Heiðar Snær Ragnarsson og Borghildur Arnarsdóttir náðu þeim frábæra árangri að sigra í hraðabrautinni. Viktoría Einarsdóttir, sem keppti í hreystigripi og armbeygjum, og Benedikt Blær Guðjónsson, sem keppt í upphífingum og dýfum, stóðu fyrir sínu og samanlagður árangur varð 6. sæti.