Jóladagskrá skólans

14. desember skreyta nemendur stofurnar.

15. des. er jólabíó.

16. des. er jólaföndur og kakójól þar sem nemendur mega koma með kökur með kakóinu sem í boði er.

17. des. er áfram jólaföndur, í hádeginu er ,,jólamáltíð" skólans þar sem boðið er upp á jólamat, starfsfólk þjónar til borðs og mælst er til þess að allir séu jólalega klæddir.

18. desember eru litlu jólin.

Á litlu jólunum eru stofujól þar sem nemendur skiptast á pökkum. Miðað er við að pakkarnir séu á verðbilinu 700 til 1100 kr.

Útlit er fyrir að litlu jólin verði með breyttu sniði þannig að aðeins yngri nemendur dansi kringum jólatré því enn eru fjöldatakmarkanir í grunnskólum, 50  hjá þeim yngri en 25 hjá þeim eldri.