Heilsudagar Brims í skólanum

Í síðustu viku var Heilsuvika Brims og tókum við þátt í skólanum. Nemendur í 6. - 10. bekk fóru á stuttan fyrirlestur um virðingu og fordóma með Önnu Steinsen frá KVAN. Síðan fóru allir nemendur skólans í heimilisfræði og elduðu fisk og fengu sumir einnig að flaka hann. Allir voru sáttir með fiskinn sinn og líklega duglegri að borða hann þegar þau tóku þátt í eldamennskunni. Við þökkum Brim kærlega fyrir að leyfa okkur að taka þátt í þessu verkefni með þeim.