Það var líf og fjör í skólanum okkar þegar Háskólalestinn kom í heimsókn sl. miðvikudag. Einnig komu nemendur frá Öxarfjarðarskóla og Grunnskólanum á Þórshöfn til að taka þátt. Nemendur úr 5. - 10. bekk tóku þátt í fjölbreyttum og fræðandi námskeiðum Háskólalestarinnar. Þeir fengu að spreyta sig í efnafræði, rafmagnstilraunum, blaða- og fréttamennsku, sjúkraþjálfun, gervigreind, japönskum fræðum og dulkóðun. Dagurinn var einstaklega ánægjulegur og vonandi voru nemendur ánægðir með allt sem var í boði. Við þökkum Háskólalestinni kærlega fyrir komuna.
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 470 3250 / Stafrænt leyfisblað er á heimasíðu skólans.