Hákon Ingi í þriðja sæti

Hákon Ingi Stefánsson hafnaði í þriðja sæti í Stóru upplestrarkeppninni sem fram fór á Egilsstöðum í gær. Til hamingju með glæsilegan árangur Hákon. Guðný Alma Haraldsdóttir tók einnig þátt í keppninni fyrir okkar hönd og stóð sig mjög vel. Á myndinni er einnig Sara Líf Magnúsdóttir sem var til vara. Umsjónarkennarinn Unnur Ósk æfði keppendur og bekkinn allan og er ástæða til að þakka henni fyrir gott starf.