Árshátíð Vopnafjarðarskóla

Árshátíð skólans er 8. apríl og verður með sama hætti og mörg undanfarin ár (fyrir covid), dagsýningin er kl. 14.00 og kvöldsýning

kl. 20.00. Góðum tíma er varið í undirbúning, síðasta vikan nánast eingöngu tileinkuð hátíðinni og á fimmtudagsmorgni er lokaæfing.

Í stað hefðbundins bóknáms læra nemendu annað sem heyrir undir aðalnámskrá eins og sviðslist, sköpun, framkomu, einbeitingu, aga og hegðun á svona samkomum..

Á  árshátíðardaginn er ekki skólastarf fyrir hádegi en nemendur eiga að  mæta hálftíma fyrir dagsýningu og vel fyrir kvöldsýningu.  Allir nemendur og starfsfólk koma á einhvern hátt að hátíðinni.

Nemendum er raðað í sæti eftir aldri, yngstu fremst og svo koll af kolli eins og plássið leyfir. Elstu leikskólanemendum er ætlað sæti á fremsta bekk á dagskemmtun. Ætlast er til að foreldrar nemenda í 2.-3. bekk hafi eftirlit með sínum börnum eftir að þeirra atriðum lýkur á kvöldsýningu.

Skólaakstur er á og af báðum sýningum.

Kaffihlaðborð er í hléi eins og endranær.

Að venju eru nemendur í 7.-10. bekk beðnir að koma með kökur og annað bakkelsi og skila í Miklagarð kl. 10-11 á árshátíðardaginn. 

Vonandi verður góð aðsókn og allir skemmti sér vel.