Treyjudagurinn

Við ætlum að mæta í treyju til stuðnings börnum með krabbamein.

 

Um treyjudaginn: 

Treyjudagurinn var fyrst haldinn á Englandi árið 2013 en dagurinn eins og við þekkjum hann í dag byggist á danskri fyrirmynd Børne Cancer Fonden frá árinu 2019. Fljótlega bættust Noregur og Svíþjóð í hópinn og á örfáum árum hefur átakið sameinað þúsundir einstaklinga, fyrirtækja, skóla og íþróttafélaga í stuðningi við börn með krabbamein.

Með Treyjudeginum bætist Ísland í hópinn þar sem við stöndum með börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.