Valgreinar á unglingastigi

Hönnun og smíði

Í Hönnun og smíði fá nemendur tækifæri til að hanna og skapa eigin verkefni með fjölbreyttum efnum og verkfærum. Áhersla er lögð á sköpun, sjálfstæði, nákvæm vinnubrögð og að finna lausnir á verkefnum. Nemendur þróa hugmynd frá skissu að fullgerðri afurð og læra að vinna á öruggan og markvissan hátt.

Markmið:

  • Að efla sköpun og hugmyndaauðgi.
  • Að þjálfa hönnun og verklega færni.
  • Að læra að nýta ólík efni, verkfæri og aðferðir.
  • Að efla sjálfstæði, nákvæmni og útsjónarsemi.
  • Að þjálfa nemendur í að leysa vandamál og finna skapandi lausnir.
  • Að vinna af ábyrgð og virðingu fyrir efnum, verkfærum og umhverfi.

Leiklist

Í leiklist fá nemendur tækifæri til að tjá sig, vinna saman og efla sköpun sína. Unnið er með leik, tjáningu, raddbeitingu og sviðsframkomu. Nemendur taka þátt í uppsetningu á leikriti sem sýnt er á litlu jólunum og fá þar tækifæri til að skapa, æfa og koma fram fyrir áhorfendur.

Markmið:

  • Að efla sjálfstraust og tjáningu.
  • Að þjálfa samvinnu og samskipti.
  • Að efla sköpun og hugmyndavinnu.
  • Að þjálfa sviðsframkomu og raddbeitingu.
  • Að taka þátt í uppsetningu og sýningu á leikriti.

Íþróttaval

Í íþróttavali fá nemendur tækifæri til að hreyfa sig, prófa fjölbreyttar íþróttir og efla líkamlega færni. Áhersla er lögð á hreyfigleði, samvinnu og að nemendur taki virkan þátt í fjölbreyttum leikjum og æfingum.

Markmið:

  • Að auka hreyfingu og hreyfigleði.
  • Að efla þol, styrk, snerpu og samhæfingu.
  • Að kynnast fjölbreyttum íþróttum og leikjum.
  • Að þjálfa samvinnu og íþróttamannslega hegðun.
  • Að efla sjálfstraust og jákvætt viðhorf til hreyfingar.

Heimilisfræði

Í heimilisfræði fá nemendur að læra gagnlega færni sem nýtist í daglegu lífi. Unnið er með matargerð, bakstur, næringu og hreinlæti þar sem nemendur fá að prófa sig áfram og vinna sjálfstætt og í hópi.

Markmið:

  • Að efla færni í matargerð og bakstri.
  • Að kynnast hollu og fjölbreyttu mataræði.
  • Að læra um næringu og mikilvægi góðra matarvenja.
  • Að þjálfa sjálfstæð og ábyrg vinnubrögð.
  • Að kunna góð vinnubrögð varðandi hreinlæti og umgengni.

Félagsmiðstöð/nemendaráð

Í félagsmiðstöðvarvali fá nemendur tækifæri til að taka virkan þátt í félagsstarfi skólans. Nemendur í valinu skipa jafnframt nemendaráð og koma að skipulagningu og framkvæmd viðburða, ásamt því að hafa áhrif á skólastarfið og skapa skemmtilegt félagslíf.

Markmið:

  • Að efla félagsfærni, samskipti og samvinnu.
  • Að þjálfa frumkvæði og ábyrgð.
  • Að gefa nemendum tækifæri til að hafa áhrif á skólastarfið.
  • Að taka þátt í skipulagningu og framkvæmd viðburða.
  • Að efla leiðtogahæfni og lýðræðislega þátttöku.

Starfsnám

Í starfsnámi fá nemendur tækifæri til að kynnast atvinnulífinu með því að fara á vinnustað og taka þátt í daglegu starfi. Nemendur fá innsýn í ólík störf, læra af starfsfólki og kynnast því hvernig vinnustaðir starfa. Námið gefur nemendum tækifæri til að prófa sig áfram og öðlast reynslu sem getur nýst þeim í framtíðinni.

Markmið:

  • Að kynnast atvinnulífinu og fjölbreyttum störfum.
  • Að öðlast reynslu af raunverulegu vinnuumhverfi.
  • Að þjálfa ábyrgð, stundvísi og sjálfstæði.
  • Að efla samskipti og samvinnu á vinnustað.
  • Að öðlast betri innsýn í eigin áhugasvið og framtíðarmöguleika.

Lego forritun og nýsköpun

Í lego forritun fá nemendur tækifæri til að hanna, smíða og forrita vélmenni og leysa fjölbreytt verkefni. Nemendur þurfa einnig að vinna að nýsköpunarverkefni. Þemað er BIOGLOW, þar sem áhersla er á fjölbreytileika lífríkisins og lausnir sem geta stuðlað að heilbrigðari framtíð.

Markmið:

  • Að kynnast grunnatriðum í forritun og vélmennasmíði.
  • Að efla rökhugsun, sköpun og lausnamiðaða hugsun.
  • Að þjálfa samvinnu og teymisvinnu.
  • Að vinna að raunverulegum verkefnum og finna skapandi lausnir.
  • Að undirbúa nemendur fyrir þátttöku í FIRST LEGO League keppninni sem er haldin 14. nóvember næstkomandi.