Vel heppnaðir þemadagar og opið hús í skólanum

Þemadagar skólans gengu einstaklega vel og var gaman að sjá hversu mikið líf og fjör var í skólanum þessa daga. Það var virkilega skemmtilegt að ganga um skólann, fylgjast með nemendum og starfsfólki að störfum og sjá alla taka virkan þátt í fjölbreyttum verkefnum. Þemað að þessu sinni var Þjóðsögur og vorum við að vinna með sögur sem tengjast Vopnafirði.

Opið hús var vel sótt og gaman að fá gesti í heimsókn sem fengu tækifæri til að kynnast skólastarfinu og sjá afrakstur þemadaganna. Boðið var upp á vöfflur og kaffi/djús.

Við þökkum öllum nemendum, starfsfólki og gestum kærlega fyrir þátttökuna og samveruna.