Þorrablót skólans 2024

Þorrablót nemenda í 6. - 10. bekk og starfsfólks var haldið síðastliðinn fimmtudag. Á blótinu var boðið uppá þorramatur, 9. bekkur sá um skreytingar á salnum ásamt hjálparfólki, nemendur 8. bekkjar þjónuðu gestum og nemendur 10. bekkjar buðu upp á frumsamin skemmtiatriði. Þar sýndu þeir myndband af starfsfólki og nemendum að syngja og dansa, leikrit þar sem þeir gerðu góðlátlegt grín af starfsfólki og sjálfum sér og í lokinn var ball. Frábært blót þar sem allir virtust skemmta sér vel. 

Á föstudag var svo haldið lítið blót fyrir 1. - 5. bekk þar sem nemendur fengu að smakka þorramat og horfa á myndbandið frá því kvöldinu áður.