Það var heldur betur lesið af krafti í Vopnafjarðarskóla í svakalegu lestrarkeppninni! Nemendur tóku þátt og lögðu sitt af mörkum og stóðu sig með stakri prýði.
Við náðum ekki verðlaunasæti í landskeppninni en við erum ákaflega stolt af skólanum í heild, svo má alltaf gera betur næst. Á miðvikudaginn voru tölurnar loksins tilkynntar. Til að verðlauna góðan árangur fengu allir bleikan ís 🍦💗
Við óskum öllum nemendum innilega til hamingju með frábæran árangur. Það er greinilegt að lestraráhuginn er mikill í Vopnafjarðarskóla og við hlökkum til að sjá enn fleiri spennandi lestrarævintýri í framtíðinni!
Vel gert hjá nemendum okkar 📖👏
|
Lónabraut 12, 690 Vopnafjörður ☎︎ 470 3250 ✉︎ vopnaskoli@vopnaskoli.is
Skólastjóri: María Guðmundsdóttir Aðstoðarskólastjóri: Berglind Ósk Wiium Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:50 - 15:30 |
Flýtileiðir