Litlu jólin

Litlu jólin eru 20. desember frá kl. 9:30-12:00.

Á litlu jólunum skiptast nemendur á pökkum og eru krakkarnir beðnir að koma með pakka sem kosta um 600-1000 kr. og skila til umsjónarkennara. Mælst er til að ekki sé sælgæti í pökkunum og pakkinn sé bæði fyrir stelpu og stráka.

Byrjað er á  að fara í stofur með umsjónarkennurum. Jólaguðspjallið er lesið og einnig stutt jólasaga. Pakkarnir eru opnaðir, boðið upp á sælgæti og jólakortin skoðuð.

Eftir stofujólin er dagskrá þar sem allir bekkir eru  með atriði, dansað kringum jólatré og jólasveinar koma í heimsókn.

Skólaakstur er á litlu jólin.