Hrekkjavaka 👻

Hrekkjavakan var haldin með skemmtilegum hætti. Nemendur og starfsfólk mættu í búningum og skólinn var skreyttur og myrkur í tilefni dagsins. Nemendur fengu sér nesti í sal, köku í eftirrétt og tóku svo þátt í söngstund. Í íþróttum var farið í feluleik. Skemmtilegur dagur í skólanum!