Foreldradagur 27. janúar

Á morgun, föstudaginn 27. janúar er foreldradagur í skólanum.

Á þessum degi boðum við foreldra og nemendur í viðtal til umsjónarkennara einnig geta foreldrar rætt við aðra kennara ef þess er óskað.

Það verður ekki matur í hádeginu eins og verið hefur á þessum degi en við ætlum þess í stað að bjóða upp á vöfflur og kaffi.

Leiðarljós foreldraviðtala er velferð nemenda og mikilvægt að skóli og heimili vinni vel saman.

Í viðtalinu er nemandinn þátttakandi og lærir þannig með aldri og þroska að taka ábyrgð á eigin námi í samráði við foreldra og kennara

Foreldrum ber skylda til að fylgjast vel með námsgengi barna sinna og skólasókn í Mentor og þannig eru þeir alltaf vel upplýstir um stöðu þeirra. Umræða í foreldraviðtölum byggist að hluta til á þeim upplýsingum sem þar er að finna.

Þannig að það er nauðsynlegt að foreldrar séu búnir að fara inn á Mentor og skoða námsmatið, hæfnikortið sem átt hefur sér stað í skólanum í vetur og einnig að skoða skólasókn barna sinna.

Utan hefðbundinni viðtala eru foreldrar hvattir til að hafa samband við umsjónarkennara barnanna þegar tilefni er til og umsjónarkennarar munu að sama skapi hafa samband við heimilin ef þurfa þykir.

þar sem ekki er um hefðbundinn skóladag að ræða þá fellur frístund niður.