Erasmus+ ferð til Hollands

Hollandsfarar!
Hollandsfarar!

Fimm nemendur skólans halda nú til Hollands þar sem þeir taka þátt í spennandi Erasmus+ verkefni með áherslu á lýðræði og mannréttindi. Á meðan á ferðinni stendur munu nemendurnir hitta ungmenni frá öðrum löndum, fræðast um lýðræði og mannréttindi og taka þátt í fjölbreyttum verkefnum og umræðum. Ferðin er frábært tækifæri til að kynnast nýju fólki, menningu og sjónarmiðum og efla samstarf þvert á landamæri. Við óskum nemendum og starfsmönnum góðrar ferðar, góðrar upplifunar og góðs gengis í Hollandi!

Við hlökkum til að heyra um ævintýrin þegar heim er komið 🇮🇸🤝🇳🇱