Bolludagur og bræður hans

Mánudaginn 12. febrúar er bolludagurinn en þá mega nemendur koma með bollur í nesti og á sprengidag er er saltkjöt og baunir í matinn. Á öskudaginn verður hefðbundin stundaskrá lögð til hliðar eins og hefð er fyrir í skólanum . Krakkarnir mæta í skólann kl. 8.30 og vonandi allir í einhverskonar búningum. Um kl. 9 er farið í íþróttahúsið þar sem kötturinn er sleginn úr tunnunni og á eftir kynna allir hvað þeir vilja vera samkvæmt búningnum. Á eftir fara krakkarnir í bæinn, heimsækja fyrirtæki og stofnanir, syngja fyrir starfsfólk og fá eitthvað gott í staðinn.