Árshátíð Vopnafjarðarskóla

Árshátíðin er föstudaginn 23. mars kl. 14 og kl. 20, í Miklagarði.

Góðum tíma er varið í að undirbúna hátíðina og síðasta vikan nær eingöngu ætluð í þá vinnu og á fimmtudagsmorgni er lokaæfing.  Í stað hefðbundins náms læra nemendur margt annað sem er gagnlegt og mikilvægt, eins og tjáningu, framsögn, framkomu, einbeitingu, aga og hegðun á svona samkomum..

Á  árshátíðardaginn er ekkert skólastarf fyrir hádegi en nemendur eiga að  mæta hálftíma fyrir dagsýningu og vel fyrir kvöldsýningu.  Allir nemendur og starfsfólk koma á einhvern hátt að hátíðinni.  Þeim er raðað í sæti eftir aldri, yngstu fremst og svo koll af kolli eins og plássið leyfir. Elstu leikskólanemendum er ætlað sæti á fremsta bekk á dagskemmtun. Ætlast er til að foreldrar nemenda í 1.-3. bekk hafi eftirlit með sínum börnum eftir að þeirra atriðum lýkur á kvöldsýningu. Skólaakstur er á og af báðum sýningum.

Kaffihlaðborð er í hléi eins og endranær og er verð 1000 kr. fyrir fullorðna, 500 kr. fyrir börn og frítt fyrir leikskólabörn.

Að venju eru nemendur í 7.-10. bekk beðnir að koma með kökur og annað bakkelsi og skila í Miklagarð kl. 10-11 á árshátíðardaginn. 10.bekkur og helmingur af 9.bekk komi með 2 stk. af rjóma-/marenstertum eða þess háttar. Aðrir í 9.bekk og 8. bekkur komi með 2 stk. af brauðtertum og  brauðréttum. 7. bekkur komi með 1 stk. af krem-/súkkulaðitertu eða öðru. Ekki er beðið um meira en  þrenns konar bakkelsi frá hverju heimili.