Í dag 11. febrúar á 112 daginn vorum við með brunaæfing í skólanum.
Viðvörunarkerfi skólans var virkjað og skólinn rýmdur samkvæmt viðbragðsáætlun.
Allir fóru rólega og skipulega út á söfnunarsvæði (skólavöllinn) undir leiðsögn kennara og starfsfólks. Æfingin gekk vel og gaman að sjá hvað allir stóðu sig vel og tóku æfinguna alvarlega.
Svona æfingar eru mikilvægar svo við vitum öll hvernig við eigum að bregðast við ef eitthvað kemur upp á.
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 470 3250 / Stafrænt leyfisblað er á heimasíðu skólans.