Nokkrar breytingingar eru á skóladagatali vegna röskunar í mars og apríl. Námsmat hefur verið í gangi meðfram kennslu en enginn starfsdagur verður þessa daga. Hefðbundið starf verður fram á þriðjudag 26. maí nema árlegi Unicef dagurinn verður felldur inn í starfið eftir veðri. Vordagar eru 27.-28. maí og skólaslit föstudaginn 29. maí. Skólaslit verða þannig að nemendur í 1.-9. bekk kveðja kennarana sína í kennslustofum. Útskrift 10. bekkjar verður um miðjan dag með viðhöfn. Þetta verður allt kynnt betur síðar.
|
Lónabraut 12, 690 Vopnafjörður ☎︎ 470 3250 ✉︎ vopnaskoli@vopnaskoli.is
Skólastjóri: María Guðmundsdóttir Aðstoðarskólastjóri: Berglind Ósk Wiium Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:50 - 15:30 |
Flýtileiðir