Þetta eru heiti fyrirlestra sem Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur, býður upp á á morgun, föstudaginn 15. september þegar hann kemur í heimsókn til okkar. Hann ætlar að vera með nemendum úr 5.-7. bekk í 40 mínútur undir yfirskriftinni Vertu hetjan í þínu lífi og síðan með 8.-10. bekk í tvær kennslustundir með fyrirlesturinn Verum ástfangin af lífinu. Þorgrímur hefur komið til okkar a.m.k. tvisvar áður og er fyrirlestur hans sérstaklega athyglisverður, skemmtilegur og án vafa gagnlegur fyrir okkar unga fólk.
|
Lónabraut 12, 690 Vopnafjörður ☎︎ 470 3250 ✉︎ vopnaskoli@vopnaskoli.is
Skólastjóri: María Guðmundsdóttir Aðstoðarskólastjóri: Berglind Ósk Wiium Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:50 - 15:30 |
Flýtileiðir