Fimmtudaginn 9. febrúar, er þorrablót nemenda í 6.-10. bekk og starfsfólks. Þorrablótið hefst stundvíslega kl. 19:00 og aðgangseyri er 2000 krónur.
Nemendur í 10. bekk sjá um veislustjórn og skemmtiatriði. Nemendur í 9. bekk sjá um skreytingar og 8. bekkingar þjóna til borðs.
Föstudaginn 10. febrúar er þorrablót fyrir 1.-5. bekk. Þar er boðið upp á valin skemmtiatriði frá blóti eldri nemenda og sunginn fjöldasöngur.
|
Lónabraut 12, 690 Vopnafjörður ☎︎ 470 3250 ✉︎ vopnaskoli@vopnaskoli.is
Skólastjóri: María Guðmundsdóttir Aðstoðarskólastjóri: Berglind Ósk Wiium Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:50 - 15:30 |
Flýtileiðir