Þorrablót nemenda í 6. - 10. bekk og starfsfólks skólans var haldið fimmtudag 5. febrúar. Á blótinu var boðið uppá þorramatur, 9. bekkur sá um skreytingar á salnum ásamt nemendum í 8. og 10. bekk, nemendur 8. bekkjar þjónuðu gestum blótsins og nemendur 10. bekkjar buðu upp á skemmtiatriði og sáu um veislustjórn. Þar sýndu nemendur frumsamda leikþætti þar sem þeir gerðu góðlátlegt grín af starfsfólki og sjálfum sér, sýndu myndband og fleira. Í lokinn var ball. Frábært blót þar sem allir virtust skemmta sér vel.
Á föstudag var svo haldið lítið blót fyrir 1. - 5. bekk þar sem nemendur fengu að smakka þorramat og horfa á myndbandið frá því kvöldinu áður.
Við þökkum nemendum og starfsfólki fyrir vinnuna við undirbúning blótsins, foreldrum 10. bekkjar fyrir aðstoðina í eldhúsinu og Lindu Björk fyrir aðstoðina með skreytingar.
|
Lónabraut 12, 690 Vopnafjörður ☎︎ 470 3250 ✉︎ vopnaskoli@vopnaskoli.is
Skólastjóri: María Guðmundsdóttir Aðstoðarskólastjóri: Berglind Ósk Wiium Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:50 - 15:30 |
Flýtileiðir