Eins og kom fram í fjölmiðlum, föstudaginn 13. mars, hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem fela m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið.
Nánari útfærslur verða unnar samkvæmt tilmælum stjórnvalda.
Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að mánudaginn 16. mars verði starfsdagur í leik- og grunnskóla Vopnafjarðarhrepps svo stjórnendur og starfsfólk geti skipulagt skólastarfið sem best á þessu tímabili sem takmörkunin nær til.
Foreldrar leik- og grunnskólabarna eru beðnir að fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu á mánudaginn m.a. á heimasíðu Vopnafjarðarhrepps og heimasíðum grunn- og leikskóla.
|
Lónabraut 12, 690 Vopnafjörður ☎︎ 470 3250 ✉︎ vopnaskoli@vopnaskoli.is
Skólastjóri: María Guðmundsdóttir Aðstoðarskólastjóri: Berglind Ósk Wiium Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:50 - 15:30 |
Flýtileiðir