Í gær fór fram árleg skólahreystikeppni okkar fyrir keppnina stóru á Egilsstöðum. Þá er hraðabraut líkust því sem er í Skólahreysti stillt upp í salinn. Fyrst er tekinn tími á öllum sem vilja í eldri bekkjum og síðan fá þeir yngri að spreyta sig. Að lokum reyndu þeir fyrir sér sem líklegir voru í aðrar greinar keppninnar. Og liggur nú nokkuð ljóst fyrir hverjir fara fyrir okkar hönd í keppnina sem fram fer miðvikudaginn 5. apríl.
|
Lónabraut 12, 690 Vopnafjörður ☎︎ 470 3250 ✉︎ vopnaskoli@vopnaskoli.is
Skólastjóri: María Guðmundsdóttir Aðstoðarskólastjóri: Berglind Ósk Wiium Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:50 - 15:30 |
Flýtileiðir