Háskólalest Háskóla Íslands heimsækir Vopnafjörð dagana 6.–8. maí og býður unga fólkinu, kennurum og íbúum svæðinu upp á sannkallað vísindaævintýri.
Í áhöfn Háskólalestarinnar eru kennarar og nemendur úr fjölbreyttum greinum innan Háskóla Íslands. Miðvikudaginn 7. maí verða þau með fjölbreytt námskeið fyrir nemendur í 5.–10. bekk í Vopnafjarðarskóla þar sem nemendur frá Þórshöfn og Öxarfirði taka einnig þátt. Meðal námskeiða í boði eru blaða- og fréttamennska, efnafræði, gervigreind, japönsk fræði, sjúkraþjálfun, dulkóðun og rafstuð. Daginn áður, 6. maí, býðst kennurum grunnskólana jafnframt að sækja sérstakar smiðjur um gervigreind og náttúruvísindakennslu á vegum kennara í Háskólalestinni.
Fimmtudaginn 8. maí verður svo Opið vísindahús í Félagsheimilinu Miklagarði kl. 15–17. Þar geta gestir á öllum aldri tekið þátt í lifandi og skemmtilegum tilraunum og spreytt sig á spennandi verkefnum: Tekið fréttaviðtöl, prófað tól og tæki sjúkraþjálfara, skrifað japönsk tákn, uppgötvað undur gervigreindar, kynnst undrum efnafræðinnar hjá Sprengju-Kötu, kafað ofan í dulmál og dulkóðun og jafnvel kannað hvort það sé hægt að búa til rafhlöðu úr kartöflu! Öll eru hjartanlega velkomin – aðgangur er ókeypis og engin skráning nauðsynleg.
Vopnafjörður er fyrsti áfangastaður lestarinnar í ár en hún heimsækir einnig Patreksfjörð í maí og Suðurland í haust. Frá árinu 2011 hefur lestin ferðast vítt og breitt um landið og miðlað vísindum með líflegum og fjölbreyttum hætti og um leið lagt áherslu á að styrkja starf grunnskólanna og efla tengsl Háskóla Íslands við samfélög um allt land.
Háskólestin hefur heimsótt hátt á fjórða tug áfangastaða og fengið einstaklega hlýjar móttökur hvert sem komið er. Þá hefur lestin hlotið Vísindamiðlunarverðlaun Rannís.
Hægt verður að fylgjast með lestinni á vef hennar og á Facebook-síðu lestarinnar.
|
Lónabraut 12, 690 Vopnafjörður ☎︎ 470 3250 ✉︎ vopnaskoli@vopnaskoli.is
Skólastjóri: María Guðmundsdóttir Aðstoðarskólastjóri: Berglind Ósk Wiium Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:50 - 15:30 |
Flýtileiðir