Glæsilegt kastbretti fyrir íþróttahúsið 🏃‍♂️

Nemendur í hönnun og smíði hafa undanfarið unnið að skemmtilegu verkefni – að hanna og smíða kastbretti fyrir íþróttahúsið.

Nemendur lögðu metnað í verkið og fengu einnig tækifæri til að skreyta kastbrettið á glæsilegan hátt. Útkoman er virkilega flott.

Frábært framtak hjá nemendum og gaman að sjá hugmyndir þeirra verða að veruleika! 👏

Við þökkum nemendum og Baldri smíðakennara fyrir þetta frábæra framtak, verkið afhentu þau svo Sölva íþróttakennara á dögunum.