Fulltrúar frá Geðhjálp og Barnaheillum heimsóttu skólann okkar á dögunum og hittu nemendur í 8.–10. bekk. Nemendur tóku þátt í vinnustöðvum þar sem rætt var um líðan, geðheilsu, mikilvægi þess að leita sér hjálpar og hvert hægt er að snúa sér þegar á þarf að halda.
Í umræðunum komu fram ýmis áhugaverð sjónarmið frá nemendum sem voru kynnt um kvöldið fyrir foreldrum, forráðamönnum, sveitarstjóra, sveitarstjórn og fleirum sem vildu kynna sér hvað ungmennin okkar höfðu að segja. Niðurstöðurnar voru jákvæðar og sýndu meðal annars að nemendur leggja mikla áherslu á að eiga meiri samveru með foreldrum sínum. Einnig kom í ljós að þau eru vel meðvituð um hvert þau geta leitað eftir aðstoð ef þeim líður illa eða þurfa stuðning.
Heimsóknin var mikilvægt tækifæri til að ræða þessi málefni í öruggu umhverfi, hlusta á raddir nemenda og minna á að það er alltaf í lagi að leita sér hjálpar.
Unnsteinn Manúel tók svo lagið í lokin. Frábær heimsókn. Við þökkum Geðhjálp og Barnaheillum kærlega fyrir komuna og gott samstarf!
Þökkum einnig fyrir frábæra mætingu á fundinn, þau höfðu sérstaklega orð á því hversu vel var mætt.
|
Lónabraut 12, 690 Vopnafjörður ☎︎ 470 3250 ✉︎ vopnaskoli@vopnaskoli.is
Skólastjóri: María Guðmundsdóttir Aðstoðarskólastjóri: Berglind Ósk Wiium Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:50 - 15:30 |
Flýtileiðir