Á þriðjudaginn fóru nemendur 5.-6. bekkjar í Sláturhúsið á Egilsstöðum. Þar tóku þeir þátt í sirkuslistanámskeiði ásamt því að horfa á sirkuslistasýningu. Vel heppnuð ferð og skemmtu nemendur sér vel.
Á miðvikudaginn fór skólinn í sína árlegu haustferð. Nemendur skemmtu sér vel í útiveru og fengu að njóta fallegs haustdags í góðu veðri.
Nemendur í 1. og 2. bekk gengu upp á Fagrafjall.
3. og 4. bekkur fór út á Tangasporð.
5.–7. bekkur gengu upp á Sjónvarpshæð og niður hjá Vatnsdalsgerði.
8.–10. bekkur fór í gönguferð að Böðvarshaug.
Veðrið lék við okkur og allt gekk vel. Það var gaman að sjá nemendur njóta útiverunnar, hreyfa sig og eiga góða stund saman utan skólastofunnar.
Á fimmtudaginn fóru nemendur í 9.-10. bekk á starfamessu á Neskaupsstað. Þar fengu nemendur að kynnast fjölbreyttum störfum og fræðast um ólíkar starfsgreinar. Nemendur skoðuðu einnig Verkmenntaskóla austurlands.
Á föstudaginn fóru nemendur úr 7.-10. bekk á Laugamótið. Það var virkilega vel heppnuð ferð og allir nemendur til fyrirmyndar. Strákarnir tóku gullið í dodge ball, stelpurnar tóku silfrið í dodge ball og gullið í körfubolta. Liðin lentu einnig í undanúrslitum í fleiri greinum, ótrúlega flottur árangur.
Að þessu sinni fengum við tvo foreldra og einn kennara til að fara með hópnum og þökkum við þeim kærlega fyrir.
Það var því sannarlega nóg að gera hjá nemendum okkar :)
|
Lónabraut 12, 690 Vopnafjörður ☎︎ 470 3250 ✉︎ vopnaskoli@vopnaskoli.is
Skólastjóri: María Guðmundsdóttir Aðstoðarskólastjóri: Berglind Ósk Wiium Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:50 - 15:30 |
Flýtileiðir