Dodici- varð um helgina Legomeistari í tækni- og hönnunarkeppni Lego sem fram fór í Reykjavík og er í umsjá Háskóla Íslands. Þetta er í annað sinn á þessu ári sem lið frá Vopnafjarðarskóla verður Legomeistari. Dodici- vann vélmennakappleikinn en var einnig tilnefnt fyrir hönnun og forritun á vélmenninu og fyrir rannskóknarverkefnið/nýsköpunarverkefnið sem að þessu sinni tengdist orkumálum í heimabyggð. Með sigrinum vann liðið sér rétt til þátttöku í Norðurlandamótinu sem haldið verður í Osló 3. desember og er undirbúningur fyrir það nú hafinn. Frábær árangur hjá liðinu.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá helginni ásamt link á viðtal við Sólrúnu Dögg, þjálfara liðsins, sem birtist í Austurfréttum í gær en þar er farið nákvæmara yfir keppnina.
https://austurfrett.is/lifid/tolfan-fra-vopnafirdhi-vardhi-legomeistaratitilinn
|
Lónabraut 12, 690 Vopnafjörður ☎︎ 470 3250 ✉︎ vopnaskoli@vopnaskoli.is
Skólastjóri: María Guðmundsdóttir Aðstoðarskólastjóri: Berglind Ósk Wiium Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:50 - 15:30 |
Flýtileiðir