Á morgun, 16. nóvember, er dagur íslenskrar tungu, fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar.
Stóra upplestrarkeppnin hefst formlega á föstudaginn og ætla því nemendur í 7. bekk að lesa fyrir leikskólabörnin eins og verið hefur. mörg undanfarin ár.
Undirbúningur að ljóðasamkeppni sem allir nemendur taka þátt í hefst þennan dag og þemað er Ísland.
Úrslitin verða kunngjörð á fullveldishátíðinni 1. desember og verða verðlaun veitt úr sjóðnum Með íslenskuna að vopni.
Í tilefni Dags íslenskrar tungu ætlum við öll, starfsfólk og nemendur, að mæta í betri fötunum, fínum klæðnaði þennan dag.
|
Lónabraut 12, 690 Vopnafjörður ☎︎ 470 3250 ✉︎ vopnaskoli@vopnaskoli.is
Skólastjóri: María Guðmundsdóttir Aðstoðarskólastjóri: Berglind Ósk Wiium Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:50 - 15:30 |
Flýtileiðir