Berjaferð

Í gær héldum við í okkar árlegu berjaferð við Grjótá og fengum sannkallaðan sumardag. Veðrið lék við okkur og stemningin var frábær.
Eitthvað af berjum rataði í boxin en það var ekki síður mikið sullað og leikið sér í ánni. Unglingarnir héldu í þá hefð að fara ofar í ánna, þar sem þeir skemmtu sér konunglega. Svo mikið var fjörið að það gleymdist alveg að taka myndir – en þeir voru með! 😄
Það er því óhætt að segja að dagurinn hafi heppnast vel og við komum heim með góðar minningar úr skemmtilegri ferð.