Á miðvikudegi til föstudags, 15.-17. nóvember, brjótum við upp skólastarfið með þemavinnu.
Tilefnið er að 50 ár, 1967-2017, eru liðin síðan skólastarf var fært frá fallega barnaskólanum við Kolbeinsgötu í glæsilega byggingu við Lónabraut, teiknaða af Sigvalda Thordarsyni, arkitekt frá Ljósalandi.
Við viljum biðja fólk sem á í fórum sínum myndir og muni frá skólastarfi á þessum árum eða veit af slíku að láta okkur vita. Sérstaklega auglýsum við eftir myndum frá vígslu skólans 1967.
Þá viljum við bjóða Vopnfirðingum í afmæli og kaffiveislu á föstudaginn kl. 13.30-15:00.
Nemendur og starfsfólk Vopnafjarðarskóla
|
Lónabraut 12, 690 Vopnafjörður ☎︎ 470 3250 ✉︎ vopnaskoli@vopnaskoli.is
Skólastjóri: María Guðmundsdóttir Aðstoðarskólastjóri: Berglind Ósk Wiium Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:50 - 15:30 |
Flýtileiðir